{"product_id":"b-vitamin-blanda","title":"B-Vítamín Blanda Liposomal","description":"\u003cp data-mce-fragment=\"1\" class=\"p1\"\u003e\u003cstrong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\" class=\"s1\"\u003eB-vítamínin eru samtals 8 talsins og hefur hvert þeirra sína sérstöku virkni í líkamanum. B vítamínin gegna m.a. fjölmörgum hlutverkum fyrir taugakerfið, svo sem myndun taugaboðefna, en einnig í myndun amínósýra, kynhormóna og kortisóls. Þá leika þau mikilvægt hlutverk í orku- og efnaskiptum líkamans, og eru mikilvæg fyrir starfsemi meltingarfæra þar sem þau aðstoða ensím líkamans við að breyta kolvetnum og annarri fæðu í glúkósa sem líkaminn brennir svo til að framleiða orku. B vítamín eru einnig mikilvæg eðlilegri frumustarfsemi, fyrir starfsemi vöðva, augna, hjarta- og æðakerfis, myndunar rauðra blóðkorna, ásamt því að viðhalda vexti nagla og hárs. \u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" class=\"p2\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\" class=\"s1\"\u003eRétt samsett blanda af B vítamínum tryggir að líkaminn geti framkvæmt hinar ýmsu aðgerðir sínar með sem bestum árangri. Til að hámarka getu og styrkleika hvers og eins þeirra, höfum við sameinað þau í sérstöku lípósómal B vítamíni. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" class=\"p2\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\" class=\"s1\"\u003e„Lípósómal“ kallast það þegar vítamíninu er pakkað inn í tvöfalda fituhimnu. Himnan virkar líkt og ferja fyrir vítamínið þar sem það fer í gegnum meltingarveginn, og verndar það gegn of hröðu niðurbroti. Þessi tvöfalda fituhimna bindst svo auðveldlega við frumuveggi þarmanna og eykur þannig upptöku vítamínsins margfalt, miðað við hefðbundin vítamín í töfluformi\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" class=\"p2\"\u003e\u003cstrong\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\" class=\"s1\"\u003eLípósómal B vítamín inniheldur:\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" class=\"p3\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\" class=\"s1\"\u003e\u003cb data-mce-fragment=\"1\"\u003eB1 \u003c\/b\u003e(þíamín). Stuðlar að eðlilegum, orkugæfum efnaskiptum, eðlilegri starfsemi taugakerfis og hjarta, sem og\u003cspan data-mce-fragment=\"1\" class=\"Apple-converted-space\"\u003e  \u003c\/span\u003esálfræðilegri starfsemi. Frumur taugakerfisins nærast einkum á kolvetnum og eru þær háðar þíamíni til þess að geta notað kolvetnið sem orkugjafa. Taugafrumur verða því fyrst og mest fyrir barðinu á þíamínskorti.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" class=\"p2\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\" class=\"s1\"\u003e\u003cb data-mce-fragment=\"1\"\u003eB2\u003c\/b\u003e (ríbóflavín): Viðheldur eðlilegri starfsemi taugakerfis, slímhúðar, rauðra blóðkorna, húðar og sjónar. Stuðlar einnig að eðlilegum efnaskiptum járns, ver frumur fyrir oxunarálagi og dregur úr þreytu.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" class=\"p2\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\" class=\"s1\"\u003e\u003cb data-mce-fragment=\"1\"\u003eB3\u003c\/b\u003e (níasín): Svipað að virkni og B2. Töluverður fjöldi rannsókna sýnir að það stuðlar að lækkun kólesteróls, þar sem LDL lækkar og HDL hækkar.*\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" class=\"p2\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\" class=\"s1\"\u003e\u003cb data-mce-fragment=\"1\"\u003eB5\u003c\/b\u003e (pantótensýra): Stuðlar að eðlilegum orkuefnaskiptun og andlegri getu; eðlilegri myndun og efnaskiptum kynhormóna, D-vítamíns og nokkurra taugaboðefna. Dregur úr þreytu.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" class=\"p2\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\" class=\"s1\"\u003e\u003cb data-mce-fragment=\"1\"\u003eB6\u003c\/b\u003e (pýridoxín): Styður starfsemi ónæmiskerfisins og dregur úr þreytueinkennum, ásamt því að taka þátt í myndun og umbroti kolvetna, fitu, amínósýra, kjarnsýra, próteins og hemóglóbíns.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" class=\"p5\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\" class=\"s2\"\u003e\u003cb data-mce-fragment=\"1\"\u003eB7 \u003c\/b\u003e(bíótín): \u003c\/span\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\" class=\"s3\"\u003eEinnig þekkt undir öðrum nöfnum, svo sem H-vítamín og kóensím-R. Bíótín fáum við úr fæðu, auk þess sem það myndast í þörmum þegar gerlagróður meltingafæra er heilbrigður. \u003c\/span\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\" class=\"s2\"\u003eStuðlar að viðhaldi húðar og hárs, ásamt eðlilegri starfsemi taugakerfis, efnaskiptum orkugefandi næringarefna, og viðhaldi eðlilegrar slímhúðar. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" class=\"p5\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\" class=\"s2\"\u003e\u003cb data-mce-fragment=\"1\"\u003eB9 \u003c\/b\u003e(fólínsýra): Styður virkni tauga- og hjartakerfis \u003c\/span\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\" class=\"s3\"\u003eog er nauðsynlegt allri frumuskiptingu. Tekur þátt í myndun DNA og RNA kjarnsýra, ásamt því að gegna mikilvægu hlutverki við myndun rauðra og hvítra blóðkorna, sem og annarra fruma sem skipta sér ört. Viðheldur heilbrigði slímhúðar.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" class=\"p2\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\" class=\"s1\"\u003e\u003cb data-mce-fragment=\"1\"\u003eB12\u003c\/b\u003e: Stuðlar m.a. að eðlilegum og orkugæfum efnaskiptum, eðlilegri starfsemi ónæmiskerfis og\u003cspan data-mce-fragment=\"1\" class=\"Apple-converted-space\"\u003e  \u003c\/span\u003etaugakerfis (nýmyndun tauga), og andlegri starfsemi ásamt því að taka þátt í eðlilegri myndun rauðra blóðkorna. B12 vítamínskortur er vel þekktur og getur haft alvarlegar afleiðingar. Meira um B12 vítamín\u003c\/span\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\" class=\"s4\"\u003e.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" class=\"p2\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\" class=\"s1\"\u003eLípósómal B-vítamín er fullkomin blanda sem tryggir hámarks nýtingu\/upptöku. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" class=\"p2\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\" class=\"s1\"\u003eVegan og laust við ofnæmisvalda.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp data-mce-fragment=\"1\" class=\"p6\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\" class=\"s2\"\u003e\u003ci data-mce-fragment=\"1\"\u003e*\u003c\/i\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\" class=\"s1\"\u003e\u003ci data-mce-fragment=\"1\"\u003eCanner PL, Berge KG, Wenger NK, et al. Fifteen year mortality in Coronary Drug Project patients: Long-term benefit with niacin. J Am Coll Cardiol. 1986;8:1245-1255.\u003c\/i\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Beta Nordic","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":41753690177703,"sku":"","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0361\/6364\/9676\/products\/Nota-Beta_NordicVitamin_B-Blanda_150ml.jpg?v=1638901498","url":"https:\/\/betanordic.is\/en\/products\/b-vitamin-blanda","provider":"Beta Nordic Vítamín","version":"1.0","type":"link"}